Taka Vatnsmýrina í notkun undir blandaða byggð!

Það er ekki nokkur spurning að langhagkvæmast og heppilegast að öllu leyti er að þétta byggð sem allra mest til að koma þessum nýju íbúum fyrir og í leiðinni að skapa atvinnutækifæri í námunda við nýja byggð.  Þá liggur auðvitað beinast við að nota Vatnsmýrina í þessu skyni, bæði fyrir íbúabyggð og atvinnustarfsemi,  og finna innanlandsfluginu annan hentugan stað. Það kæmi líka í veg fyrir  stórfelda aukningu á mengun og  fjölgun umferðaslysa.
mbl.is Íbúafjölgun upp á tugi þúsunda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rannsóknir mikilvæg forsenda góðrar kennslu

Í fréttinni segir:

Ríkisendurskoðun tekur undir það sjónarmið að akademísk staða háskóla, þ.e. menntun kennara og rannsóknarvirkni, og gæði kennslu séu tveir aðskildir þættir. Akademísk staða gefur þó til kynna hvort skólarnir hafi yfir að ráða velmenntuðu starfsfólki sem fylgist með nýjungum á fræðasviði sínu og reynir að stuðla að framþróun þess. Að því leyti er hún viss forsenda gæða. Um það hljóta jafnt forstöðumenn háskóla sem yfirvöld menntamála að vera sammála.

Ég er algjörlega sammála því að hátt menntunarstig og mikil rannsóknavirkni er nauðsynleg forsenda góðrar kennslu og stuðlar að því að það nám sem boðið er upp á feli alltaf í sér helstu nýjungar á viðkomandi sviði. Þetta er einmitt ástæðan fyrir því að við ráðnungu nýrra akademískra starfsmanna  í tölvunarfræðideild HR er mikil áhersla lögð á þessi atriði enda kemur greinilega fram í skýrslunni að rannsóknavirkni deildarinnar, eins og hún er mæld í útektinni, hefur meira en sexfaldast á tímabilinu sem athugunin náði yfir. Við hjá deildinni höldum að sjálfsögðu áfra  þessarri þróun og hlökkum því verulega til næstu úttektar Ríkisendurskoðunar á gæaðmálum deildarinnar sem við væntum að verði gerð eftir 3 ár og  þar sem afrakstur átaks okkar verður gerður lýðum ljós.

Áður en ég yfirgef þessa færslu, get ég ekki stillt mig um að koma með smá persónulegt ívaf og vitna í álit kærunefndar jafnréttismála í máli nr. 10/2005, sjónarmið Háskóla Íslands (http://www.rettarheimild.is/Felagsmala/KaerunefndJafnrettismala/2006/06/01/nr/2211) en þar segir:Það hafi verið mat deildarinnar að vegna eðlis fagsins (tölvunarfræði) væri mikilvægara að fá til starfans kennara sem hefði reynslu af kennslu í grunnnámskeiðum tölvunarfræði en framhaldsnámskeiðum og/eða með mikla rannsóknareynslu. Þetta hafi umsækjendum mátt vera ljóst.

Ég skora hérmeð á tölvunarfræðiskor Háskóla Ísands að virða viðhorf Ríkisendurskoðunar  og endurskoða viðhorf sitt til fagsins tölvunarfræði og stuðla þannig að því að skapa því þann sess sem því ber í íslensku samfélagi.

Fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér rannsóknavirkni akademískra starfsmanna í tölvunarfræði HR og HÍ eins og hún birtist frá alþjóðlegu sjónarmiði, (þeas án þess að "aðlaga hana séríslenskum aðstæðum")  er boðið að heimsækja eftirfarandi vefsíður: http://www.ru.is/luca/csstaff.html    http://www.ru.is/luca/csstaffHI.html.


mbl.is Ríkisendurskoðun gerir athugasemdir við umfjöllun um háskólaskýrslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýjir og breyttir tímar!

Þar sem ég er prófessor í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík, get ég auðvitað  ekki fjallað um niðurstöðu þessarrar skýsrlu á hlutlausan hátt. Mig langar þó að benda á að skýrslan sýnir alveg greinilega að birtingartíðni á hvert akademískt stöðugildi í tölvunarfræði við HR jókst um 633% á tímabilinu sem skoðað var, 2003-2005, þó svo að lokaniðurstaða skýrsunnar sé byggð á hreinu meðaltali yfir tímabilið.  Þessi jákvæða þróun í rannsóknvirkni tölvunarfræði HR hefur svo haldið stöðugt áfram og gerir að sjálfsögðu enn. Þeir sem vilja kynna sér rannsóknavirkni starfsmanna tölvunarfræðideildar HR, eins og hún birtist á alþjóðlegum vettvangi í dag,  er bent á að heimsækja vefsíðuna  http://www.ru.is/luca/csstaff.html   og að skoða rannsóknaskýrslu deildarinnar sem gerð var í vetur  og má finna á   http://www.ru.is/luca/report2006.pdf.   Til samanburðar má sjá rannsóknavirkni akademiskra starfsmanna tölvunarfræðiskorar HÍ út frá sömu forsendum með því að heimsækja síðuna http://www.ru.is/luca/csstaffHI.html .  Dæmi svo hver sem vill!

Anna Ingólfsdóttir


mbl.is Háskóli Íslands kemur best út í úttekt Ríkisendurskoðunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrsta bloggfærsla

Þessi færsla er búin til af kerfinu þegar notandi er stofnaður. Henni má eyða eða breyta að vild.

Um bloggið

Anna Ingólfsdóttir

Höfundur

Anna Ingólfsdóttir
Anna Ingólfsdóttir

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband